{"product_id":"songur-i-mannhafinu-26385-25456","title":"Söngur í mannhafinu # 26385","description":"Söngur í mannhafinu. Ljóð eftir Jón frá Pálmholti.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eLokasöngur\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVið sem stöndum utan hringiðunnar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHvert væri líf okkar hefðum við fæðst sem minkar\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eeða refir og alin í búri vegna feldsins?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVið erum lánsöm að hafa fæðst sem menn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e(Ef okkur verður ekki breytt í minka eða refi).\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVið sem stöndum utan hringiðunnar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHvert væri lífið í heiminum án okkar?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFyrir aðra troðum við nýjar slóðir og vekjum\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehugmyndir þeirra af dvala hins fánýta.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eNú er mönnunum kennt að brosa með rassinum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVið sem stöndum utan hringiðunnar\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eviljum benda ykkur á andlitið. Á gildi andlitsins\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eaugnanna og tungunnar og á sköpun hugans.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVélar eru þægilegar en þær skapa ekki.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e(Mætti ég vera blóm með regnhlíð úr stráum.)\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVið sem stöndum til hliðar. Temjum\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehina órólegu krafta og leiðbeinum þeim\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem hafa ekkert vit á lífinu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125704425800,"sku":"OSC-25456","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/26385.jpg?v=1754814445","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/songur-i-mannhafinu-26385-25456","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}