{"product_id":"songvar-fra-sumarengjum-77342-12175","title":"Söngvar frá sumarengjum # 77342","description":"Söngvar frá sumarengjum. Ljóð eftir Guðmund Frímann.\u003cbr\u003eGuðmundur Frímann var fæddur 1903, hann ólst upp í Hvammi í Langadal en bjó lengst af á Akureyri. Ljóð hans fjalla um æskuslóðirnar og íslenska náttúru en bæjar- og borgarlíf samtímans er víðsfjarri. Sögur hans árétta þetta efnisval, þær lýsa mannlífinu í íslenskum sveitum á fyrri hluta aldarinnar. Verk Guðmundar bera með sér að þar fer skáld sem heldur í gamlar hefðir og lætur sér nýjungar í léttu rúmi liggja.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFyrsta ljóðabók Guðmundar, Náttsólir, kom út 1922 og var þar á ferðinni verk í nýrómantískum anda. Þessi bók hlaut litlar undirtektir en það kom þó ekki í veg fyrir að skáldið héldi áfram að yrkja og árið 1933 birtist Úlfablóð. Fjórum árum síðar sendi hann frá sér Störin syngur og 1951 Svört verða sólskin. Í þessum ljóðabókum sjást þess engin merki að átök eigi sér stað meðal íslensku þjóðarinnar um hvernig skáld skuli yrkja. Guðmundur stendur vörð um gildi hefðarinnar, yrkir rímað og notar stuðla og höfuðstafi. Söngvar frá sumarengjum er af mörgum álitið stórbrotnasta skáldverk Guðmundar, þar stígur hann fram sem fullmótað skáld. Safn ljóðaþýðinga, Undir bergmálsfjöllum 1958, fylgdi fast á eftir og í síðustu ljóðabók sinni birti hann fleiri ljóðaþýðingar ásamt frumortu efni. Árið 1959 kom út úrval þýddra smásagna, Ástaraugun, og í framhaldi af því sendi hann frá sér frumsamdar smásögur og skáldsögur; Svartárdalssólin, Rautt sortulyng, Stúlkan úr Svartaskógi og Rósin frá Svartamó. Guðmundur Frímann hlaut rithöfundarlaun um árabil, fékk heiðurslaun þegar úthlutað var í fyrsta sinn úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins og naut heiðurslauna úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126810214728,"sku":"OSC-12175","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/77342.jpg?v=1754833856","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/songvar-fra-sumarengjum-77342-12175","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}