{"product_id":"spegilsonata-40343-37263","title":"Spegilsónata # 40343","description":"Spegilsónata. Skáldsaga eftir Þórey Friðbjörnsdóttir.\u003cbr\u003eÁleitin og erótísk saga um það sem alltaf er en aldrei verður: Ævaforn lögmál sem hefðin horfir fram hjá, ástina sem neitar að deyja, syndina sem byltist í fylgsnum, fórnina sem skiptir sköpum. Þetta er sagan um það sem býr á bak við spegilmyndina. Með einstæðum tökum á frásagnarhætti og stíl fjallar höfundur um miskunnarlausar en um leið ómótstæðilegar mótsagnir í lífi aðalpersónanna og glímu þeirra við gömul örlög. Hann segir sögu karls og konu sem leiðast um lífið á laun eins og tré sem flétta rætur djúpt í mold, söguna sem allir þekkja en enginn sér. Þetta er fjórða skáldsaga höfundar og sú fyrsta fyrir fullorðna en Þórey hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Eplasnepla árið 1995. (Bókatíðindi 2000).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125088092488,"sku":"OSC-37263","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/40343.jpg?v=1754796458","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/spegilsonata-40343-37263","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}