{"product_id":"st-og-ongthveiti-i-slendingasogum-38450-35549","title":"Ást og öngþveiti í Íslendingasögum # 38450","description":"Ást og öngþveiti í Íslendingasögum. Eftir Thomas Bredsdorff. Þýðandi Bjarni Sigurðsson.\u003cbr\u003eÍ bókakynningu í Þjóðviljanum 14. desember 1974 er sagt frá Ást og öngþveiti. \"Thomas Bredsdorff er ungur danskur fræðimaður, kennari í norrænum bókmenntum við Hafnarháskóla. Ást og öngþveiti hefur að\u003cbr\u003egeyma rannsóknir á lífsmynd Íslendingasagna, en er þó umfram\u003cbr\u003eannað skilgreining á nokkrum\u003cbr\u003efrægustu fornsögum vorum, svo\u003cbr\u003esem Egils sögu, Gisla sögu Súrssonar, Njáls sögu, Grettis sögu og\u003cbr\u003eLaxdælasögu. Þekking höfundar\u003cbr\u003eog hugkvæmni verður ekki dregin\u003cbr\u003ei efa, enda kemst hann i bók sinni\u003cbr\u003eað ýmsum markverðum og nýstárlegum niðurstöðum. M.a.\u003cbr\u003esýnir hann fram á, að bak við hinar auðsæju uppistöðumyndir\u003cbr\u003everkanna, sem speglast i blóðugum átökum um völd og heiður,\u003cbr\u003emá auðveldlega greina annað\u003cbr\u003esagnamynstur, hinar ástriðufullu\u003cbr\u003eástir og hætturnar, sem þjóðfélaginu eru búnar, þegar þeim er\u003cbr\u003efylgt eftir án þess að hirt sé um\u003cbr\u003elög og réttarreglur. Þannig verða\u003cbr\u003eÍslendingasögurnar að mati höfundarins tilraun til að skýra ástæðuna fyrir öngþveiti og upplausn hins islenska þjóðveldis, en í lokakafla er greint frá þvi, að hvaða leyti þessar athuganir koma heim við fyrri rannsóknir á\u003cbr\u003esögunum.\"","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125239611720,"sku":"OSC-35549","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/38450.jpg?v=1754799504","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/st-og-ongthveiti-i-slendingasogum-38450-35549","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}