{"product_id":"stefania-melste-fiminning-og-brjef-61660-34687","title":"Stefanía Melsteð. Æfiminning og brjef # 61660","description":"Stefanía Melsteð. Æfiminning og brjef með sjö ljósprentuðum myndum. Bogi Th. Melsteð setti saman og gaf út.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ Lögréttu 22.janúar 1927 er fjallað um bók Boga Th. Melsteð um systur sína Stefaníu. Þar segir; \"Um bók þessa höfur verið\u003cbr\u003enæsta hljótt. Hún kom hingað í\u003cbr\u003ebókaverslun rjett fyrir jólin.\u003cbr\u003eHr. Bogi Th. Melsteð hefur samið hana og gefið út til minningar\u003cbr\u003eum systur sína.\u003cbr\u003eStefanía Melsteð er fædd í\u003cbr\u003eKlausturhólum 8. ágúst 1864.\u003cbr\u003eForeldrar hennar voru sjera Jón\u003cbr\u003ePálsson Melsteð prófastur og frú\u003cbr\u003eSteinunn Bjarnadóttir Melsteð.\u003cbr\u003eStefania ólst upp á Þingvöllum\u003cbr\u003ehjá sjera Símoni Bech og frú\u003cbr\u003eÖnnu föðursystur sinni. Var það\u003cbr\u003eorðlagt fyrirmyndarheimili. Haust\u003cbr\u003eið 1874 gekk Stefanía í Barnaskóla Reykjavíkur og var í honum tvo vetur. Dvaldi hún þá hjá\u003cbr\u003efrú Þórdísi Thorsteinsen, sem\u003cbr\u003eeinnig var föðursystir hennar.\u003cbr\u003eDvaldi hún hjá henni oft á vetrum síðan. Þegar Stefanía var á\u003cbr\u003e14. ári veiktist hún af sjúkdómi\u003cbr\u003eþeim, er dró hana loks til dauða.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVorið 1879 fluttist Stefanía að\u003cbr\u003eKárastöðum með frú Önnu fóstru sinni sem þá var orðin ekkja.\u003cbr\u003eEn haustið 1886 fór hún til móður sinnar að Klausturhólum og\u003cbr\u003eljetst þar á uppstigningard. 1889.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBókin styðst mikið við sendibrjef, bæði frá Stefaníu og til\u003cbr\u003ehennar. Auk þess flytur hún\u003cbr\u003evitnisburð ýmsra þeirra er þektu\u003cbr\u003ehana, þar á meðal þeirra Ólafíu\u003cbr\u003eJóhannsdóttur og frú Þórunnar\u003cbr\u003eRichardsdóttur í Höfn, sem báðar voru miklar vinstúlkur hennar.\u003cbr\u003eÍ bókinni eru einnig fögur eftirmæli eftir Dr. Valdimar Briem.\u003cbr\u003eLýsir skáldið Stefaníu á þessa\u003cbr\u003eleið:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e„Þú sjúka barn, þú hetja hraust,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþú hreina ljós á döprum kveik,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþú fölva lilja, fagra rós,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþú fallni reyr, þú sterka eik\".\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÆfi Stefaniu varð hvorki löng\u003cbr\u003enje viðburðarík. Hún andaðist á\u003cbr\u003e25. ári og var sjúkdómi þjáð í\u003cbr\u003e11 ár. En þrátt fyrir það skildi\u003cbr\u003ehún eftir fagran gróður í sporum\u003cbr\u003esínum. Hún var á alla grein fyrirmyndarstúlka, því hjá henni fóru\u003cbr\u003esaman gáfur og göfuglyndi. Hún\u003cbr\u003ehafði einstakt lag á því að láta\u003cbr\u003elítið bera á raunum sínum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHlotnaðist henni það sem hún\u003cbr\u003eþráði mest: að verða fremur til\u003cbr\u003egleði en sorgar ástvinum sínum\u003cbr\u003eog öllum þeim, er hún var samtíða, — þrátt fyrir miklar þjáningar og dapurleika veikindanna.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞetta er einróma vitnisburður\u003cbr\u003eallra manna, sem nokkuð þektu\u003cbr\u003etil Stefaníu. Hún var í þeim gæfumannaskara, er hlúir að öllu þvi,\u003cbr\u003esem best er og háleitast í hverju\u003cbr\u003ehjarta.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ þessu er fólgið gildi bókarinnar. Hún mun verða góður gestur ættmanna Stefaniu sál. En hún\u003cbr\u003eá ennfremur erindi til allra\u003cbr\u003eþeirra, sem bækur vilja lesa, og\u003cbr\u003ehafi Bogi Melsteð þökk fyrir sitt\u003cbr\u003everk.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGamall Þingvellingur.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125279555912,"sku":"OSC-34687","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/37509.jpg?v=1754801099","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/stefania-melste-fiminning-og-brjef-61660-34687","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}