{"product_id":"stigar-86035-37716","title":"Stígar # 86035","description":"Stígar. Ljóð eftir Guðberg Bergsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eSvarta skýið\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg get ekki risið upp til þess frelsis sem ég hef þráð\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eað ganga um nakinn klæddur í orð\u003cbr\u003e\u003cbr\u003etil þess að sérhver athöfn verði sama eðlis og gagnsætt gler\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eeða frosna vatnið sem maður finnur í sálinni og veit að enginn sér.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞetta stafar af því að svarta skýið eltir í vissri fjarlægð.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÚr hvaða óvissu læðist skýið fram og löngunin til að hverfa í það?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHreinn krýp ég í tveimur hjörtum með ákvörðun sem verður aldrei tekin en\u003cbr\u003euppfyllist samt.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÓskirnar eru til þess að þær rætist aldrei en verði hugsanlega fullnægt.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAð öðrum kosti ætti óskin ekkert skylt við rót og yrði fljótt að engu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e,,Þótt líkamanum sé eðlilegt að deyja, þá deyr hann aldrei. Og þótt hann dæi myndu\u003cbr\u003edjöflar hans ekki deyja með honum.\"\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg heyrði mann taka þannig til orða en veit ekki hvort vit er í því.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125011185992,"sku":"OSC-37716","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/40898.jpg?v=1754795654","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/stigar-86035-37716","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}