{"product_id":"stir-samlyndra-hjona-80995-53969","title":"Ástir samlyndra hjóna # 80995","description":"Ástir samlyndra hjóna. (Tólf tengd atriði). Skáldsaga eftir Guðberg Bergsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞegar að því rak hafði hjónaband Sveins og Katrínar staðið óslitið, með nokkrum meinlausum frávikum, í tæpan aldarfjórðung. Um og eftir hjónavígsluna tengdi girnd líkamans þau böndum, síðan afleiðing hennar: börnin. En tæplega fertug áttu hjónin fátt sameiginlegt annað en húseign og örlitla bankainnistæðu, sem duldi kynþreytuna hjá báðum. Hún sagði við hann á kvöldin: Guð veit ég væri fyrir löngu orðin staðuppgefin í þessu víti, strandaði ekki allt á lúshægum uppvexti barnanna. Hann svaraði engu, en hugsaði: hreyfi ég hönd eða fót þá er mér hús og innistæða töpuð. Af þessum ástæðum kaus Sveinn að þola óþolandi sið Katrínar að rjúka að heiman hvenær sem þeim sinnaðist.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122950439240,"sku":"OSC-53969","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/60776.jpg?v=1754753692","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/stir-samlyndra-hjona-80995-53969","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}