{"product_id":"stjornlaus-lukka-64711-56781","title":"Stjórnlaus lukka # 64711","description":"Stjórnlaus lukka. Skáldsaga eftir Auði Jónsdóttur.\u003cbr\u003eTæp tólf ár eru liðin frá því Didda fluttist með mömmu sinni í lítið sjávarþorp úti á landi. Nú á hún sér fast pláss á flæðilínunni í frystihúsinu, og þær mæðgur eru orðnar hluti af sérstæðu mannlífi smábæjarins þar sem Valdi popp, Júlla jú jú, Gudda ameríska og Sveinn spariskór ganga um götur. En þar er líka Radek hinn tékkneski með brúðurnar sínar sem hleypir lífi í dagdrauma hennar um annað líf á öðrum stað.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ þessari skemmtilegu skáldsögu lýsir Auður Jónsdóttir mótunarárum ungrar stúlku í kunnuglegu umhverfi sem fáir þekkja þó af eigin raun. Af hlýju og nærfærni dregur hún upp minnistæðar myndir af fólki, sigrum þess og sorgum, gleði og andstreymi, þar sem viðkvæmt samband mæðgna er í forgrunni.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eStjórnlaus lukka var fyrsta skáldsaga Auðar Jónsdóttur.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122488410440,"sku":"OSC-56781","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/64711.jpg?v=1754744769","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/stjornlaus-lukka-64711-56781","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}