{"product_id":"strakur-herlendis-og-erlendis-74822-64010","title":"Strákur, hérlendis og erlendis # 74822","description":"Strákur, hérlendis og erlendis. Ragnar Ásgeirsson segir frá.\u003cbr\u003eRagnar Ásgeirsson, f. 6. nóvember 1895 á Kóranesi á Mýrum, d. 1. janúar 1973 í Reykjavík, var íslenskur garðyrkjuráðunautur og rithöfundur. Hann var þekktur fyrir starf sitt sem garðyrkjuráðunautur Búnaðarfélags Íslands og fyrir að safna þjóðlegum fróðleik og sögnum, og komu bækur út eftir hann um þetta efni. Auk þess starfaði hann að undirbúningi og stofnun minjasafna víða um land.\u003cbr\u003eForeldrar Ragnars voru hjónin Ásgeir Eyþórsson, kaupmaður á Mýrum og í Straumfirði, seinna bókhaldari í Reykjavík, og Björg Matthíasdóttir frá Holti í Reykjavík. Árið 1901 flutti Ragnar með foreldrum sínum til Reykjavíkur og ólst þar upp, en dvaldi einnig löngum í Knarrarnesi hjá frændum sínum, og í Vík í Mýrdal hjá föðursystur sinni. Þegar fjölskyldan flutti til Reykjavíkur bjuggu þau í húsinu Holti við Skólavörðustíg. Á þessum tíma rak Einar Helgason garðyrkjumaður Gróðrarstöð Búnaðarfélagsins við Laufásveg, og þar fékk Ragnar Ásgeirsson sumarvinnu í nokkur ár fyrir fermingu. Í Gróðrarstöðinni kynntist hann margvíslegri ræktun sem kveikti hjá honum áhuga sem átti eftir að leggja grundvöll að löngu ævistarfi á þessu sviði.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121312366920,"sku":"OSC-64010","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/74822.jpg?v=1754719874","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/strakur-herlendis-og-erlendis-74822-64010","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}