{"product_id":"strengjatok-87909-55456","title":"Strengjatök # 87909","description":"Strengjatök. Ljóðmæli eftir Konráð Vilhjálmsson.\u003cbr\u003eKonráð Vilhjálmsson fæddis að Sílalæk í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu í júlí 1885. Vilhjálmur faðir hans var sonur Jónasar bónda Guðmundssonar að Sílalæk og konu hans Guðrúnar Jónsdóttur frá Stórutungu í Bárðardal. Móðir Konráðs var Kristín Jakobína Kristjánsdóttir Steinssonar, hálfsystir Þorgríms í Nesi. Kristján faðir hennar mun hafa verið ættaður úr Eyjafirði, skyldur Hvassafellsætt.\u003cbr\u003eSjö ára flytur Konráð með foreldrum sínum að Hafralæk í sömu sveit, bjuggu foreldrar hans þar til æviloka. Á Hafralæk var Konráð allt til ársins 1930 að hann fluttist til Akureyrar.\u003cbr\u003eSnemma bara á miklum og fjölskrúðugum gáfum hjá Konráð og tókst honum að komast í Gagnfræðaskólann á Akureyri og lauk þaðan gagnfræðaprófi vorið 1904. Hann stundaði nám við Kennaraskólann í Reykjavík árið 1908 og kenndi að því loknu við Barnaskólann í Reykjavík. En hugurinn stefndi heim í Aðaldal, til að starfa við kennslu, búskap og félagsstörf. Hann hóf búskap að Hafralæk ásamt eignkonu sinni Þórhöllu Jónsdóttur frá Brekknakoti og stundað meðfram búskapnum kennslu í sinni sveit.\u003cbr\u003eHann aflaði sér þekkingar um hin fjölbreyttustu efni og var eftirsóttur fyrirlesari á samkomum víða um Norðurland. Hann var gjarnann fenginn til að yrkja erfiljóð og eftirmæli og talaði hann oft og flutti hugleiðingar og ljóð við útfarir.\u003cbr\u003eStrengjatök er eina ljóðabók Konráðs Vilhjálmssonar.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440359371080,"sku":"OSC-55456","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/62906.jpg?v=1770471729","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/strengjatok-87909-55456","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}