{"product_id":"svalvogar-83374-51240","title":"Svalvogar # 83374","description":"Svalvogar. Minningar Ottós Þorvaldssonar frá Svalvogum.\u003cbr\u003eBók þessi er kennd við bæinn Svalvoga, sem stendur yst á skaganum milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Höfundur meginkafla bókarinnar, Ottó Þorvaldsson, fluttist með foreldrum sínum barnungur að Svalvogum, ólst þar upp og stóð þar síðan fyrir búi í áratugi með Magneu Símonardóttur konu sinni. Hér segir frá heimilishögum, búskaparháttum og lífsbaráttu á barnmörgu heimili á útskaga á fyrri hluta tuttugustu aldar. Sem annars staðar skiptast þar á skin og skúrir, gleði og sorg í nánu samfélagi og samhjálp nágranna í afskekktri byggð. Sagt er frá öflun lífsbjargar á sjó og landi, ferðum yfir torfærur á landi og sjósókn í blíðu veðri og stríðu. Brugðið er upp myndum frá liðnum tíma í sérstæðu byggðarlagi.\u003cbr\u003eÍ Bókarauka er ýmis fróðleikur tengdur höfundi æviminninganna og átthögum hans, semt af því eftir vini hans og kunningja. Minnst er foreldra hans og ætt þeirra rakin. Ferðasögur eru þar og annar fróðleikur, gamall og nýr, og auk þess nokkur kvæði og stökur. (Káputexti).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123394707784,"sku":"OSC-51240","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/57108.jpg?v=1754761254","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/svalvogar-83374-51240","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}