{"product_id":"svarfdaelasysl-62094-54881","title":"Svarfdælasýsl # 62094","description":"Svarfdælasýsl. Höfundar eru Óskar Þór og Atli Rúnar Halldórssyni.\u003cbr\u003eÍ bókinni Svarfdælasýsli er fjalla um Kvikmyndina Land og syni, Húsabakkaskóla og Göngustaðaættina.\u003cbr\u003eBókin er 560 blaðsíður og þar eru birtar um 500 ljósmyndir. Fæstar myndanna hafa sést opinberlega fyrr og margar reyndar komið ekki fyrir fárra manna augu þar til nú.\u003cbr\u003eFjallað er um systkinin sjö sem kennd eru við Göngustaði í Svarfaðardal og sum urðu goðsagnir í lifanda lífi. Þau voru öll miklir karakterar og af þeim eru sagðar sögur og tilsvörin lifa.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eNunna í Dröfn og Jonni smiður á Sigurhæðum á Dalvík, Engilráð á Bakka og Rannveig á Jarðbrú í Svarfaðardal, Davíð smiður og harmónikuleikari á Dalvík og Páll málari í Laxamýri á Dalvík og Jóhann smiður á Akureyri.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMargt er þarna skrifað sem á eftir að koma lesendum á óvart, jafnvel þeim sem telja sig þekkja býsna vel til systkinanna og sögu þeirra. Þetta er saga um birtu og rökkur í tilverunni, gleði og sorgir, velgengni og basl en fyrst og fremst saga um áhugavert og skemmtilegt fólk sem setti sterkan svip á mannlífið og markaði spor í byggðarlaginu.\u003cbr\u003eLand og synir telst fyrir löngu til kvikmyndagoðsagnar. Myndin markar upphaf „vorsins“ sem gjarnan er talað um í íslenskri kvikmyndagerð. Hún var að mestu tekin upp í Svarfaðardal sumarið og haustið 1979 og að hluta á Hjalteyri.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ kvikmyndinni bregður fyrir mörgum leikurum og áhugaleikurum sem fallnir eru frá og hún er sömuleiðis heimild um Þinghúsið Grund sem varð eldi að bráð.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHér er rakin sagan á bak við söguna eða öllu heldur myndina. Skemmst er frá að segja að aldrei áður hefur verið fjallað um íslenska kvikmynd á þann hátt sem gert er í bókinni. Kvikmyndasögusvið Háskóla Íslands hefur nú þegar gefið sig fram sem væntanlegan kaupanda bókarinnar!\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁgúst Guðmundsson kvikmyndaleikstjóri, Jón Hermannsson kvikmyndaframleiðandi og Arnaldur Indriðason rithöfundur (G. Þorsteinssonar), eiga sýningarréttinn að Landi og sonum. Þeir ætla í tilefni af útgáfu bókarinnar að efna til sýninga á Landi og sonum í Bíói Paradís í Reykjavík. Þar verður sýnd stafræn útgáfa myndarinnar í fyrsta sinn. Myndgæðin eru önnur og meiri en menn hafa áður séð. Meira um það síðar.\u003cbr\u003eSaga Húsabakkaskóla í Svarfaðardal er rakin í máli og myndum frá upphafi 1955 til enda 2005 – í bókstaflegum skilningi!\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞessi skóli er ekki aðeins merkilegur kafli svarfdælskrar sögu. Hann er líka merkilegur hluti sjálfrar skóla- og menningarsögu landsins.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞað gekk talsvert á þegar skólinn var reistur á Húsabakka í landi Laugahlíðar og Tjarnar. Sumir vildu að menntasetrið yrði framar í dalnum, á Tungunum. Deilt var um staðarvalið.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEnn meira gekk á þegar ákveðið var að leggja niður skólastarf á Húsabakka og harkalegar deilur um málið urðu fréttaefni fjölmiðla hvað eftir annað.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁ milli upphafs og endis var sjálft skóla- og menningarstarfið farsælt og friðsælt. Það er aðalumfjöllunarefni bókarinnar og nemendalífið sömuleiðis.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMargir fyrrverandi nemendur eiga við lesturinn eftir að rifja upp minningar frá Húsabakka og sjá myndir af sér sem þeir hafa aldrei augum litið og jafnvel ekki vitað að væru til.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBirt er skrá með nöfnum allra nemenda í Húsabakkaskóla allan starfstímann frá 1955 til 2005, nöfn allra starfsmanna skólans og allra aðalfulltrúa í skólanefndum Svarfaðardalshrepps 1955-1998. (Úr kynningu útgefnanda).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122831360328,"sku":"OSC-54881","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/62094.jpg?v=1754750953","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/svarfdaelasysl-62094-54881","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}