{"product_id":"sveigu-rymi-12741-14528","title":"Í sveigðu rými # 12741","description":"Í sveigðu rými. Ljóð og örsögur eftir Bjarna Bernharð.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eOfsóknir\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eUpphófust þá tímar brjálsemi og ofsóknarkenndar. Hann skrúfaði sundur eldhúsinnréttinguna og hrærði í rafmagninu. Þá skrúfaði hann gasleiðsluna frá eldavélinni og kveikti í kerti í innsta herberginu. Hann bar miður góðan þokka til nágranna sinna og hugðist sprengja húsið í loft upp. Að því búnu yfirgaf hann húsið. En þegar hann kom aftur tveimur tímum síðar var húsið ósprungið og festi hann leiðsluna við aftur og slökkti á kertinu. Cítróen vagninn gegndi vissulega miklu hlutverki. Hann var speiskerra sem ferðaðist í tímanum á ljóshraða um framandi víddir. Þá stóð hann í fjarsambandi við geimverur. En oft hafði geimveran brotist fram í honum. Hann hafði á liðnum árum smíðað í huganum ýmsar kenningar um þennan persónugerving. Einsog um aðrar persónur sem hann túlkaði átti geimveran í höggi við fasismann. Og stóð hildarleikurinn um yfirráðin á jörðinni. Hann hafði hent þá kenningu á lofti að fasistarnir hefðu á sínum tíma gert víddarinnrás og rænt völdum.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126652993864,"sku":"OSC-14528","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/12741a.jpg?v=1754831247","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/sveigu-rymi-12741-14528","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}