{"product_id":"sverrir-haraldsson-81132-31991","title":"Sverrir Haraldsson # 81132","description":"Sverrir Haraldsson. Text written by Matthías Johannessen. English translation by May and Hallberg Hallmundsson.\u003cbr\u003eTexti á íslensku og ensku.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSverrir Haraldsson listmálari frá Svalbarði fæddist 18. mars 1930 í Vestmannaeyjum og lést 22. febrúar 1985. Foreldrar hans voru Haraldur Bjarnason og Anna Kristjánsdóttir. Foreldrar hans fluttu til Reykjavíkur en Sverrir varð eftir hjá ömmu sinni og afa, Önnu Tómasdóttur og Bjarna Jónssyni.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSextán ára fór Sverrir til Reykjavíkur og stundaði nám í Myndlista- og handíðaskólanum á árunum 1946 til 1949. Hann dvaldi við nám í París í Frakklandi frá 1952 til 1953 og síðar í Þýskalandi við nám í Hochschule fűr bildende Kűnste í Berlín á árabilinu 1957 til 1960. Sverrir hélt sína fyrstu einkasýningu 1952 og var síðan talinn meðal fremstu listmálara þjóðarinnar. Hann var einn af brautryðjendum í formbyltingu meðal listamanna hér heima. Auk listmálunar stundaði Sverrir útskurð í tré og fékkst við myndlistarkennslu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFyrri eiginkona Sverris var Sigrún Gunnlaugsdóttir. Þau eignuðust dótturina Önnu árið 1951.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSeinni eiginkona Sverris var Steinunn Marteinsdottir listakona. Þau eignuðust soninn Harald, bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Þau voru gift í 25 ár en skildu. Þau keyptu bóndabæinn Hulduhóla í Mosfellsbæ. Þar útbjuggu þau listastofur og íbúðarhús ásamt því að hafa búskap. Húsið og umhverfi þess var sjónrænt ævintýri. Garðurinn var hans stærsta listaverk en hann vonaðist þó eftir að það yrði ekki hans besta verk.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSambýliskona Sverris var Guðrún Sverrisdóttir.\u003cbr\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125427929416,"sku":"OSC-31991","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/81132.jpg?v=1754805617","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/sverrir-haraldsson-81132-31991","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}