{"product_id":"takn-og-undur-38941-35982","title":"Tákn og undur # 38941","description":"Tákn og undur. Eftir Halldór S. Gröndal.\u003cbr\u003eHalldór S. Gröndal var prestur. Hann kom seint til starfa í prestastétt, hafði áður haslað sér völl sem veitingamaður og náð góðum árangri í því starfi. Í upphafi bókarinnar greinir hann frá, hvað varð þess valdandi, að hann söðlaði um. Hann var í alvarlegri lífskreppu og hafði misst lífslöngunina. Í neyð sinni minntist hann þess, að gott gæti verið að biðja til Guðs. \"Allt í einu bað ég: Guð, ef þú ert til, þá hjálpaðu mér. Annað gat ég ekki sagt ... Þá gerist nokkuð. Ég heyrði rödd. Hvaðan hún kom, veit ég ekki ... En röddin sagði: Halldór, þetta eru ekki endalokin, heldur byrjun á nýju lífi með m ér. Síðan kom eitthvað yfir mig og því fylgdi mikill friður, gleði og vellíðan. Batinn kom fljótt. Gangan með Guði var hafin og á henni kom sterk köllun að vera þjónn hans.\"","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125173485896,"sku":"OSC-35982","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/38941.jpg?v=1754798617","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/takn-og-undur-38941-35982","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}