{"product_id":"tarfurinn-fra-skalpafloa-69002-49013","title":"Tarfurinn frá Skalpaflóa # 69002","description":"Tarfurinn frá Skalpaflóa. Saga kafbátskappa í seinni heimsstyrjöldinni. Eftir Magnús Þór Hafsteinsson.\u003cbr\u003eGünther Prien og áhöfn hans á kafbátnum U47 vöktu ótta og hrylling meðal sjófarenda seinni heimsstyrjaldar. Á fyrstu dögum stríðsins sökktu þeir orrustuskipi Breta með ótrúlegri dirfsku á fornum vettvangi Íslendingasagna; Skalpaflóa á Orkneyjum norður af Skotlandi. Það var flaggskipið Royal Oak – sjálf Konungseikin.Augu siglingaþjóða opnuðust fyrir kafbátaógninni. Prien fékk viðurnefnið „Tarfurinn frá Skalpaflóa“. Á Íslandi ríkti ótti við þýsku kafbátana. Það sást vel er Hvalfjörður varð flotastöð eftir hernám Íslands 1940. U47 herjaði á siglingaleiðum suður af landinu. Þeir fyrstu frá Íslandi sem létu lífið af völdum kafbátsárásar urðu fórnarlömb Priens og félaga. Þeir skildu eftir sig blóði drifna dauðaslóð þúsunda sjómanna. En í Þýskalandi voru þeir þjóðhetjur.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123809943880,"sku":"OSC-49013","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/69002.jpg?v=1754767568","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/tarfurinn-fra-skalpafloa-69002-49013","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}