{"product_id":"teikningar-kristinar-fra-keldum-87021-72124","title":"Teikningar Kristínar frá Keldum # 87021","description":"Teikningar Kristínar frá Keldum. Formála ritar Þórður Tómasson. Í bókarauka eru minningaskrif höfundar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTeikningar Kristínar frá Keldum er merk heimild um íslenska alþýðulist. Seint á fimmta áratug 20. aldar þegar gamla torfbæjarsamfélagið er á förum réðist Kristín Skúladóttir (1905-1995) í það verk að teikna upp muni og mannvirki gamla samfélagsins eins og þau komu fyrir á æskuheimili hennar. Þetta var gert að áeggjan Skúla föður hennar sem var einstaklega hirðusamur og mikill áhugamaður um muni gamla tímans. Á Keldum var og er raunar enn óvenjumikið varðveitt af bæði húsum, verkfærum og smágripum fyrri tíðar. Elst alls þessa er hinn forni skáli á Keldum sem er í mynd hér á bókarkápu. Hann er að stofni til frá þjóðveldisöld. Allt þetta var síðar fært þjóðinni að gjöf og er nú varðveitt af Þjóðminjasafni og Skógasafni. Í þessari bók birtast Keldnagripir í nærfærnum teikningum alþýðulistakonunnar.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440425267528,"sku":"OSC-72124","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/87021.jpg?v=1770472854","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/teikningar-kristinar-fra-keldum-87021-72124","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}