{"product_id":"teningar-i-tafli-87947-22675","title":"Teningar í tafli # 87947","description":"Teningar í tafli. Sögur eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSögurnar eru - Musteri Salómons. - Þegar ég skaut rjúpuna. - Listin að komast áfram í heiminum. - Stjörnurnar í Konstantínópel. - Kötturinn minn er dauður. - Reistir pýramídar. - Fótur steggsins. - Snjór í apríl. - Hengilásinn. - Grátur á haustmorgni.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÓlafur Jóhann Sigurðsson var eitt helsta skáld þjóðarinnar á 20.öld. Hann skrifaði margar stórar raunsæisskáldsögur, m.a. sagnabálkinn um Pál Jónsson blaðamann, og fyrir ljóð sín hlaut hann Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1976.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞað voru þó ekki síður smásögur Ólafs Jóhanns sem skópu orðstír hans sem rithöfundar og hann er án efa meðal bestu smásagnahöfunda íslenskra bókmennta. Ólafur Jóhann hafði frábær tök á hinu knappa formi, og sögur hans fjalla um þau raunsæislegu efni sem gjarna eru aðall góðra smásagna, fegurðarþrá og ljótleika, mannúð og samkennd, rangsleitni og sundurlyndi.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440247664968,"sku":"OSC-22675","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/61140.jpg?v=1770470644","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/teningar-i-tafli-87947-22675","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}