{"product_id":"the-invisible-writing-14854-16088","title":"The invisible writing # 14854","description":"The invisible writing. An autobiography 1931 - 53. Arthur Koestler.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eArthur Koestler (1905 - 1983) var ensk-ungverskur rithöfundur og baráttumaður gegn kommúnisma í kalda stríðinu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHann var af gyðingaættum, gerðist ungur blaðamaður í Þýskalandi og gekk þá leynilega í þýska kommúnistaflokkinn. Ferðaðist hann meðal annars um Sovétríkin haustið 1932. Hann var fréttaritari bresks blaðs í spænska borgarastríðinu og slapp þá naumlega við að vera tekinn af lífi, á meðan hann var í haldi þjóðernissinna Franciscos Franco herforingja. Upp úr því hvarf hann frá kommúnisma og skrifaði skáldsöguna Myrkur um miðjan dag, sem kom út á íslensku 1947. Þar reyndi hann að skýra játningar sakborninganna í Moskvu-réttarhöldunum svokölluðu, sem Stalín hélt 1938 yfir nokkrum helstu keppinautum sínum um völdin í rússneska kommúnistaflokknum. Morgunblaðið birti í árslok 1945 útdrátt úr ritgerðum Koestlers um Ráðstjórnarríkin undir heitinu „Trúin á Sovét“, og olli hann áköfum blaðadeilum. Koestler var ritstjóri greinasafnsins Guðinn sem brást, sem kom út á íslensku 1950, en þar sögðu sex kunnir menntamenn frá vonbrigðum sínum með kommúnismann.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126579167560,"sku":"OSC-16088","price":4600.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/arthurkoestler_theinvisiblewriting.jpg?v=1754829195","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/the-invisible-writing-14854-16088","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}