{"product_id":"the-living-world-46856-42820","title":"The living world # 46856","description":"The living world. Some contributions to a theory of life from a physical point of view by Steinþór Sigurðsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSteinþór Sigurðsson var fæddur 11. janúar 1904. Hann lést af slysförum 2. nóvember 1947 við myndatöku á Heklugosinu 1947 þegar glóandi hraunhella steyptist fram af hraunfossi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSteinþór var einn af helstu frumkvöðlum við rannsóknir á Heklugosinu og var að kvikmynda hraunið þegar slysið varð. Steinþór nam raungreinar í Kaupmannahöfn og útskrifaðist 1929 með stjörnufræði sem aðalgrein. Hann var kennari við Menntaskólann á Akureyri til 1935 og við Menntaskólann í Reykjavík til 1938, þá skólastjóri Viðskiptaháskóla Íslands þar til hann var sameinaður viðskiptadeild Háskóla Íslands 1941, og framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins frá stofnun þess 1939 til dauðadags 1947. Sumrin 1930-38 stundaði Steinþór landmælingar á hálendi Íslands með dönsku landmælingastofnuninni og kortlagði þá með aðstoðarmönnum svæðið frá Hofsjökli austur og suður um til Hornafjarðar. Steinþór kenndi sem stundakennari eðlis- og stærðfræði við MR og nýstofnaða verkfræðideild HÍ til dauðadags. Sem framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs var hann frumkvöðull um jarðboranir vegna jarðhita og aðrar hagnýtar náttúrurannsóknir, svo og um rannsóknir á Grímsvötnum og Kötlu, og loks Heklu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124565311816,"sku":"OSC-42820","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/46856.jpg?v=1754784689","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/the-living-world-46856-42820","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}