{"product_id":"tindar-68061-59161","title":"Tindar # 68061","description":"Tindar. Ljóð eftir Guðmund Gunnarsson frá Tindum.\u003cbr\u003eTindar er eina bók Guðmundar frá Tindum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGuömundur frá Tindum var Breiðfirðingur að ætt, og ól allan aldur sinn\u003cbr\u003evið Breiðafjörð og á Breiðafirði.\u003cbr\u003eHann var fæddur að Tindum í\u003cbr\u003eSkarðshreppi 1878,\u003cbr\u003eog dvaldi hann þar hjá foreldrum sínum fram undir tvítugs\u003cbr\u003eárin, en fór þá að heiman.\u003cbr\u003eStundaði hann einkum sjóróðra\u003cbr\u003evið Breiðafjörð og víðar, en\u003cbr\u003efékkst við bókband og barnakennslu á vetrum.\u003cbr\u003eSnemma bar á því, að Guðmundur var vel hagorður, þótt\u003cbr\u003ehann flíkaði því lítt á yngri\u003cbr\u003eárum, en seinna urðu margar\u003cbr\u003elausavísur hans landskunnar.\u003cbr\u003eGuðmundur var\u003cbr\u003egreindur maður og gjörhugull\u003cbr\u003eog fór ekki ætíð troðnar leiðir\u003cbr\u003eí skoðunum sínum. Í stjórnmálum fylgdi hann Framsóknarflokknum að málum, en í kosningastökum sínum vóg hann til\u003cbr\u003ebeggja handa og miðaði ekki\u003cbr\u003eyrkisefni sín við flokka eða\u003cbr\u003eflokkspólitík.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122108367176,"sku":"OSC-59161","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/68061.jpg?v=1754736875","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/tindar-68061-59161","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}