{"product_id":"tisyningarnar-a-skolavoruholti-1967-1972-83642-69891","title":"Útisýningarnar á Skólavörðuholti 1967-1972 # 88817","description":"\u003cp\u003eÚtisýningarnar á Skólavörðuholti 1967-1972. Höfundar Inga S. Ragnarsdóttir og Kristín G. Guðnadóttir.\u003cbr\u003eÚtisýningarnar á Skólavörðuholit 1967-1972 voru syrstu sýningarnar á skúlptúr sem haldnar voru í opinberu rými á Íslandi og ollu þær straumhvörfum í þrívíðri myndlist. Sýningarnar voru alls fimm talsins og voru haldnar að frumkvæði Myndlistaskólans í Reykjavík. Rúmlega fjörutíu listamenn á aldrinum 17 - 75 ára tóku þátt en sýnd voru um 130 verk. Eldri kynslóð virtra listamanna, ungir róttækir listamenn, listnemar og áhugamenn sýndu hlið við hlið, verk sem spönnuðu mikla vídd í aðferðafræði, inntaki og efni. Andi og hugsjónir 1968 kynslóðarinnar sveif yfir vötnum - samvinna, bjartsýni, sköpunarkraftur, tjáningarfrelsisvituns og gagnrýnin hugsun en einnig sterkur vilji til að gera myndlist sýnilegri í borgarmyndinni og ná til almennings.\u003cbr\u003eÍ þessari bók er rakin saga sýninganna en einnig er fjallað um forsögu þeirra og sögu Myndlistaskólans í Reykjavík. Í bókinni er fjöldi mynda af listaverkunum á Skólavörðuholti sem sumar hverjar hafa aldrei birtst áur og eru ómetanleg heimild, því mörg verkanna hafa glatast, enda sum úr forgengilegum efnum.\u003cbr\u003eHöfundar megintexta eru Inga S. Ragnarsdóttir myndlistarmaður og Kristín G. Guðnadóttir listfræðingur. Markús Andrésson deildarstjóri sýninga og miðlunar í Listasafni Reykjavíkur á einnig innlegg í bókinn og Áslaug Thorlacius skólastjóri Myndlistaskólans í Reykjavík ritar inngang. (Káputexti).\u003c\/p\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51120448209224,"sku":"OSC-69891","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/83642.jpg?v=1754699675","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/tisyningarnar-a-skolavoruholti-1967-1972-83642-69891","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}