{"product_id":"tiu-myndir-ur-lifi-thinu-53224-47996","title":"Tíu myndir úr lífi þínu # 53224","description":"Tíu myndir úr lífi þínu. Sögur um þykjustuleiki og alvörudrauma eftir Vigdísi Grímsdóttir.\u003cbr\u003eFyrsta bók Vigdísar Grímsdóttur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMér finnst gott að kúra hjá mömmu á morgnana, hún er svo mjúk og það er svo gott að koma við hana og láta hana anda á sig…Þá teygi ég hausinn upp að andlitinu á henni svo að munnurinn á mér er fast við munninn á henni og svo andar mamma og þá fer hennar and alveg ofan í kok á mér og þá kyngi ég og þá veit ég að ég er með mömmu and í maganum. Mamma veit ekkert af þessu, hún sefur svo fast og hana dreymir svo mikið. Ég sé á augunum á henni hvað hana dreymir mikið. Þau hreyfast fram og til baka eins og kúlurnar inni í stofuklukkunni gera. Mamma sagði einu sinni að fólk væri að dreyma þegar augun hreyfðust í svefninum. Mig langar að vera með mömmu í draumunum hennar því að mínir draumar eru svo leiðinlegir og ég er oft svo hrædd í þeim.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123936985416,"sku":"OSC-47996","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/53224.jpg?v=1754770893","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/tiu-myndir-ur-lifi-thinu-53224-47996","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}