{"product_id":"tiu-thorskastri-1415-1976-56748-50954","title":"Tíu þorskastríð 1415-1976 # 56748","description":"Tíu þorskastríð 1415-1976. Eftir Björn Þorsteinsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKomu yfirráð Dana á Eyrarsundi í veg fyrir að Ísland yrði ensk nýlenda?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eUrðu kvennamál Hinriks 8. Englandskonungs til þess að Íslendingum tókst að hrekja Englendinga úr bækistöðvum sínum hér á landi?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTaldi Jón Sigurðsson að erlendar bækistöðvar á Íslandi jafngiltu innlimun í erlent ríki?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVar það stefna Jóns Sigurðssonar að Ísland héldist sem sjálfstjórnarland innan danska ríkisins, en brytist “ekki úr fangi Danastjórnar”?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTöldu Englendingar fiskveiðihagsmunum sínum best borgið með því að Ísland yrði sjálfstætt ríki?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEru smáríki hluti af valdakerfi stórvelda?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞetta eru aðeins nokkur af þeim vandmálum, sem um er fjallað í þessu riti.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eUm Íslandsmið hefur verið barist með misjafnlega löngum hvíldum í rúmlega 560 ár. Í baráttunni um miðin hefur oltið á ýmsu, eftir því sem stórveldi hafa hnigið og risið og mótað hafréttarreglur með hliðsjón af eigin hagsmunum. Þorskastríðin eru orðin 10, sem Íslendingar hafa ýmist háð einir eða ásamt Dönum og bandamönnum þeirra um fiskveiðiréttinn á Íslandsmiðum. Frá þessari aldalöngu og örlagaþrungnu baráttu er fyrst sagt í þessu riti.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHér er dregið fram, hvernig atburðir á Íslandi voru oft nátengdir því helsta, sem var að gerast ytra á sama tíma.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123412762952,"sku":"OSC-50954","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/56748.jpg?v=1754761927","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/tiu-thorskastri-1415-1976-56748-50954","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}