{"product_id":"tomasarguspjall-86140-49443","title":"Tómasarguðspjall # 86140","description":"Tómasarguðspjall. Eftir Tómas postula. Íslensk þýðing eftir Jón Ma. Ásgeirsson sem einnig ritar inngang og skýringar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ einum merkustu fornleifafundum á 20. öld kom í leitirnar safn papírushandrita sem veittu ómetanlega innsýn í frumkristni og sögu kristindómsins. Það handrit sem mesta athygli vakti var Tómasarguðspjall, hið svokallaða „fimmta guðspjall“, sem vísað er til í ritum kirkjufeðranna en hafði til þessa verið álitið glatað. Tómasarguðspjall er talið ritað í upphafi annarrar aldar og er því ein elsta varðveitta heimildin um Jesú frá Nasaret og skylt elstu heimildunum sem guðspjöll Nýja testamentisins studdust við. Það hefur að geyma safn ummæla og dæmisagna\u003cbr\u003esem eignaðar eru Jesú, er gjörólíkt hinum guðspjöllunum að formi og þótt efni þeirra sé að sumu leyti samhljóða eru áherslur allt aðrar. Hér er ekki minnst á píslir Jesú, dauða og upprisu, kenningin ber svip af gnostískri túlkun, þar sem hinn veraldlegi heimur er talinn með öllu illur, og róttæk þjóðfélagsgagnrýni er áberandi.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123758924104,"sku":"OSC-49443","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/54946.jpg?v=1754766283","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/tomasarguspjall-86140-49443","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}