{"product_id":"tregasteinn-68402-59413","title":"Tregasteinn # 68402","description":"Tregasteinn. Spennusaga eftir Arnald Indriðason.\u003cbr\u003eKona er myrt á heimili sínu og á skrifborði í íbúðinni finnst miði með símanúmeri Konráðs, fyrrverandi lögreglumanns.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞegar málið er kannað kemur í ljós að nokkru áður hafði konan sett sig í samband við hann og beðið hann að finna fyrir sig barnið sem hún fæddi fyrir næstum hálfri öld og lét strax frá sér. Nú er Konráð miður sín yfir að hafa neitað bón hennar og einsetur sér að bæta fyrir það.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTregasteinn er áhrifamikil og óvægin saga um skömm og örvæntingu, ákafa eftirsjá og langvarandi bergmál illra verka.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eArnaldur Indriðason hefur lengi verið helsti glæpasagnahöfundur landsins og skáldsögur hans eru orðnar tuttugu og þrjár talsins. Þær hafa verið þýddar á um fjörutíu tungumál og selst í yfir fjórtán milljónum eintaka. Arnaldur hefur hlotið fjöldamörg verðlaun og viðurkenningar fyrir bækur sínar sem njóta gríðarlegra vinsælda heima og heiman.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122078122312,"sku":"OSC-59413","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/68402.jpg?v=1754736059","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/tregasteinn-68402-59413","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}