{"product_id":"tryggarpantur-64710-56780","title":"Tryggðarpantur # 64710","description":"Tryggðarpantur. Skáldsaga eftir Auði Jónsdóttur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eGísella Dal lifir fullkomnu lífi. Hún býr í stórri íbúð, er fastagestur á fínustu snyrtistofum, drekkur eðalvín og borðar exótískan mat, á milli þess sem hún skrifar stöku grein í tímarit, meira til gamans. En dag einn fær Gísella þær fréttir að ríkulegur arfur ömmu hennar sé uppurinn og að hugsanlega þurfi hún að fórna öllum sínum lífsstíl og fara að vinna fyrir sér. Þar til henni hugkvæmist að fá sér leigjendur …\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTryggðarpantur lýsir sambúð fjögurra kvenna í borg sem er full af fólki, innfæddum og aðkomumönnum. Þetta er áleitin og grátbrosleg saga þar sem teflt er saman ólíkum heimum og spurningum varpað fram um lífsgildi, lífsviðhorf – og lífsblekkingu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAuður Jónsdóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2005 fyrir skáldsögu sína, Fólkið í kjallaranum, sem var fagnað bæði af gagnrýnendum sem almennum lesendum og varð metsölubók. Hún var að auki tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og fékk frábæra dóma er hún kom út í Danmörku.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTryggðarpantur var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122488738120,"sku":"OSC-56780","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/64710.jpg?v=1754744775","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/tryggarpantur-64710-56780","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}