{"product_id":"undir-berum-himni-67466-39094","title":"Undir berum himni # 67466","description":"Hólmfríður Jónasdóttir fæddist að Grundarkoti í Blönduhlíð í Akrahreppi og ólst upp í foreldrahúsum í Skagafirði. Hún stundaði nám við Kvennaskólann á Blönduósi og lauk þaðan prófi eftir tvo vetur. Hólmfríður stundaði barnakennslu í Skarðshreppi og síðan að Veðramótum í Gönguskörðum hjá Sigurði Guðmundssyni bónda þar en þangað komu börn úr sveitinni til uppfræðslu.\u003cbr\u003eHólmfríður giftist Guðmundi Jósafatssyni, verkamanni á Sauðárkróki, árið 1928. Þau hófu búskap í Hlíð í Hjaltadal en fluttu þaðan í Axlarhaga og síðan á Sauðárkrók.\u003cbr\u003eHólmfríður starfaði mikið að verkalýðsmálum. Hún var í stjórn Verkakvennafélagsins Öldunnar á Sauðárkróki og var formaður í allmörg ár. Hún starfaði fyrir Alþýðubandalagið og var í framboði fyrir þann flokk. Hólmfríður var til margra ára formaður Kvenfélagsins á Sauðárkróki. \u003cb\u003eUndir berum himni\u003c\/b\u003e er eina bók Hólmfríðar en auk þess hafa ljóð eftir hana birst í blöðum og tímaritum. Hólmfríður lést árið 1995.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124942635336,"sku":"OSC-39094","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/49878.jpg?v=1754793154","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/undir-berum-himni-67466-39094","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}