{"product_id":"undir-felhellum-81297-68352","title":"Undir felhellum # 81297","description":"Undir felhellum. Ljóð eftir Þórarinn frá Steintúni. Af þessari bók eru prentuð \u003cb\u003e500\u003c\/b\u003e tölusett eintök og er þetta eintak nr. \u003cb\u003e267\u003c\/b\u003eþ Hér undir ritar nafn sitt Þórarinn frá Steintúni.\u003cbr\u003eÞórarinn fæddist í Stykkishólmi 17. desember 1902. Foreldrar hans voru Magnús Þórarinsson (Hálfdánarsonar bónda á Bakka í Bakkafirði) og Jórunn Sigríður Thorlacius. Þórarinn og Gunnar Gunnarsson rithöfundur voru því systkinasynir Þórarinn fluttist kornungur með foreldrum sínum til Reykjavíkur þar sem faðir hans stundaði um tíma rakaraiðn. Hann fluttist svo heim í fæðingarsveit föður síns að Steintúni í Bakkafirði, þar sem faðir hans gerðist bóndi. Magnús faðir hans lést er Þórarinn var aðeins 7 ára gamall. Móðir hans bjó áfram með börnin sín, fyrst í Steintúni en síðan í Höfn, Bakkafirði.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞórarinn tók mikilli tryggð við Steintún og kenndi sig við staðinn. Skólagangan varð ekki löng, því þá var í sveitinni aðeins um að ræða stopula farkennslu. Hann mun hafa verið einn vetur í unglingaskóla á Vopnafirði og einn vetur í gagnfræðaskólanum á Akureyri. Þórarinn var sagður hafa verið mjög vel greindur, námsfús og bókelskur og sjálfsmenntun hans hafi gefið honum drjúgan hlut. Hann las mikið alla sína ævi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞórarinn kvæntist árið 1926 Sigurbjörgu Sigurðardóttur og eignuðust þau 9 börn. Þrjú dóu í æsku og tvö dóu uppkomin. Auk þess ólst upp hjá þeim hjónum dóttursonur þeirra, Þórarinn Sveinn Thorlacius. Sigurbjörg og Þórarinn bjuggu fyrstu árin í Höfn, Bakkafirði en lengst af í Steintúni eða allt til ársins 1956. Þá brugðu þau búi vegna heilsubrests Þórarins og fluttust til Reykjavíkur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞórarinn gaf út þrjár kvæðabækur, Útfall árið 1964, Litir í laufi árið 1966 og Undir felhellum árið 1970, auk þess Sýnishorn af úrvals ljóðum 48 Norðurlandahöfunda, sem hann kallaði \"tilraun til þýðingar\". Meginstef í ljóðum hans er náttúrlýsing og ást á landi og tungu. Útgáfu sína kostaði hann sjálfur. Þórarinn vann einnig að skrásetningu örnefna á Langanesströnd, sem og nafna áá og fiskimiða á Bakkafirði. Þórarinn lést 6. ágúst 1978. (www.langanesstrond.is).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51120723460424,"sku":"OSC-68352","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/81297.jpg?v=1754705180","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/undir-felhellum-81297-68352","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}