{"product_id":"undir-svortuloftum-55046-49525","title":"Undir Svörtuloftum # 55046","description":"Undir Svörtuloftum. Ljóð eftir Braga Sigurjónsson.\u003cbr\u003eÍ Eimreiðinni 4. hefti 1954 er fjallað um Svörtuloft Braga Sigurjónssonar. Þar segir m.a.: \"Undir Svörtuloftum, svo heitir ný ljóðabók eftir Braga Sigurjónsson, sú þriðja i röðinni. En áður eru útkomnar 1947 Hver er kominn úti og\u003cbr\u003e1951 Hraunkvíslar. Það var árið 1941, að Bragi birti kvæði í fyrsta sinn, i\u003cbr\u003eEimreiðinni undir dulnefninu Þráinn. Kvæðið, sem nefndist „Kirkjugarðurinn ris\", var ort út af gömlu þjóðsögunni, um að á nýársnótt fari framliðnir á kreik, rísi úr gröfum\u003cbr\u003esinum og stígi draugadanz, unz dagur rís á ný og kallar þá aftur til helheima. Íms skáldeinkenni Braga, sem siðan hafa haldizt, birtust í þessu kvæði, svo sem hneigð hans til heilabrota, alvöru og ádeilu á samtíðina.\u003cbr\u003eHann hefur vaxið að reynslu og bragfimi, en grunntónsins frá fyrsta kvæðinu gætir enn. Ádeila og umbótaþrá er rikur þáttur í ljóðagerð hans. Undir Svörtuloftum er án efa jafnbezta ljóðabók Braga, þeirra þriggja,\u003cbr\u003eer út hafa komið Breytir þar engu\u003cbr\u003eum, þó að skoðanir hans séu stundum ekki með öllu án öfga. Hann er einangrunarsinni, óttast mjög erlend\u003cbr\u003eáhrif og þó einkum frá her þeim,\u003cbr\u003esem hér annast landvarnir um skeið\u003cbr\u003eað boði vor sjálfra. Vetnissprengjan\u003cbr\u003eóttast hann, að tortima muni mannkyni áður varir.\"","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123752796488,"sku":"OSC-49525","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/55046.jpg?v=1754766055","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/undir-svortuloftum-55046-49525","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}