{"product_id":"undirferli-74717-63959","title":"Undirferli # 74717","description":"Undirferli. Yfirheyrsla. Skáldsaga eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur.\u003cbr\u003eÍris er framúrskarandi veirufræðingur sem stundar rannsóknir við Rannsóknarstofuna Surtsey í Vestmannaeyjum. Þar rannsakar hún áhrif umhverfis á óþekkta veiru sem fannst í hinni ungu og óbyggðu Surtsey. Þegar Smári, æskuvinur hennar og æskuást, er ráðinn aðstoðarmaður hennar á tilraunastofunni verður yfirmaðurinn Aron, fyrrverandi eiginmaður Írisar, órólegur og loft verður læviblandið. Smári hefur í fórum sínum óvenjulegt mælitæki, eins konar lygamæli, sem hann er að þróa til þess að mæla heilindi og manngildi. Hann fær að gera tilraunir með tækið á tilraunastofunni og þegar veiran hættir að bæra á sér af óútskýranlegum ástæðum, kvikna hugmyndir um að tæki Smára sé um að kenna. Undirferli er ástarsaga sem á frumlegan hátt fjallar um heilindi og svik, fornan vísdóm og nýjan, vítahringi ofbeldis – og verndun ósnortinnar eyju gagnvart yfirgangi og undirferli.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121317773640,"sku":"OSC-63959","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/74717.jpg?v=1754720069","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/undirferli-74717-63959","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}