{"product_id":"undur-myvatns-57145-51275","title":"Undur Mývatns # 57145","description":"Undur Mývatns. Um fugla, flugur, fiska og fólk. Eftir Unni Jökulsdóttur. Myndir Árni Einarsson, plöntumyndir Margaret Davies.\u003cbr\u003eMá bjóða þér með í ævintýralega náttúruskoðun?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ þessari heillandi bók leiðir Unnur Jökulsdóttir okkur um undraheima Mývatns og Mývatnssveitar. Hún sýnir okkur fjallahringinn og útskýrir hvernig stórbrotið landslagið varð til, tekur þátt í fuglatalningu, fylgist með æsilegu lífshlaupi húsandarinnar, vitjar um varpið og veiðir gjáarlontur með heimafólki, rýnir í mýflugnasverma og örsmáar vatnaverur, minnist kúluskítsins sem áður einkenndi vatnsbotninn og segir frá silungsveiði og veiðibændum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÖllum þessum undrum lýsir Unnur á einstaklega lifandi hátt, með væntumþykju, forvitni og brennandi áhuga að leiðarljósi. Vatnslitamyndir eftir Árna Einarsson og Margaret Davies prýða bókina.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eUnnur Jökulsdóttir hefur skrifað vinsælar bækur um náttúru, fólk og ferðalög, ýmist ein eða með öðrum. Íslandsbækur hennar hafa flestar komið út á fleiri tungumálum en íslensku.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123392348488,"sku":"OSC-51275","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/57145.jpg?v=1754761153","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/undur-myvatns-57145-51275","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}