{"product_id":"undur-myvatns-um-fugla-flugur-fiska-og-folk-75309-59843","title":"Undur Mývatns. Um fugla, flugur, fiska og fólk # 75309","description":"Undur Mývatns. Um fugla, flugur, fiska og fólk. Eftir Unni Jökulsdóttur. Myndir Árni Einarsson, plöntumyndir Margaret Davies.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMá bjóða þér með í ævintýralega náttúruskoðun?\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ þessari heillandi bók leiðir Unnur Jökulsdóttir okkur um undraheima Mývatns og Mývatnssveitar. Hún sýnir okkur fjallahringinn og útskýrir hvernig stórbrotið landslagið varð til, tekur þátt í fuglatalningu, fylgist með æsilegu lífshlaupi húsandarinnar, vitjar um varpið og veiðir gjáarlontur með heimafólki, rýnir í mýflugnasverma og örsmáar vatnaverur, minnist kúluskítsins sem áður einkenndi vatnsbotninn og segir frá silungsveiði og veiðibændum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÖllum þessum undrum lýsir Unnur á einstaklega lifandi hátt, með væntumþykju, forvitni og brennandi áhuga að leiðarljósi. Vatnslitamyndir eftir Árna Einarsson og Margaret Davies prýða bókina.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eUnnur Jökulsdóttir hefur skrifað vinsælar bækur um náttúru, fólk og ferðalög, ýmist ein eða með öðrum. Íslandsbækur hennar hafa flestar komið út á fleiri tungumálum en íslensku.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122028085576,"sku":"OSC-59843","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/68944.jpg?v=1754734239","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/undur-myvatns-um-fugla-flugur-fiska-og-folk-75309-59843","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}