{"product_id":"utleg-71132-61276","title":"Í útlegð # 71132","description":"Í útlegð. Endurminningar Þorfinns Kristjánssonar.\u003cbr\u003eÞorfinnur Kristjánsson prentari og ritstjóri var lengst af búsettur í Kaupmannahöfn. Hann var borinn og barnfæddur Reykvíkingur, fæddur í Híðarhúsum og ólst upp að Fúlutjörn og í Þingholtum. Hann lærði til prentara í Ísafoldarprentsmiðju á dögum Björns Jónssonar - og tók þátt í smalamennsku fyrir gömlu sjálfstæðismennina þegar öldurnar rist hæst og mest var um að vera í sjálfstæðisbaráttunni. Hann hafði m.a. það hlutverk að vakta \u003ci\u003eSvínastíuna\u003c\/i\u003e á kosningadaginn, svo að góðir sjálfstæðismenn drykkju sig ekki út áður en þeir greiddu atkvæði.\u003cbr\u003eÞorfinnur gerðist síðar ritstjóri á Eyrarbakka og prentari þar, en flæktist til Kaupmannahafnar og ílentist þar.\u003cbr\u003eÍ Kaupmannahöfn var Þorfinnur fljótt lífið og sálin í Íslendingafélaginu og sótti einnig fundi Stúdentafélagsins. Hann gaf út blöðin \u003cb\u003e17. júní\u003c\/b\u003e og síðar \u003cb\u003eHeima og erlendis\u003c\/b\u003e. Blöð sem fjölluðu eingöngu um Ísland, íslensk málefni og Íslendinga í Danmörku. Hann gaf einnig út tímaritið \u003cb\u003eIslandsek meddelser\u003c\/b\u003e.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121757651272,"sku":"OSC-61276","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/71132.jpg?v=1754729565","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/utleg-71132-61276","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}