{"product_id":"vatns-er-thorf-77005-38917","title":"Vatns er þörf # 77005","description":"Vatns er þörf. Eftir Sigurjón Rist.\u003cbr\u003eSigurjón Rist gerðist brautryðjandi í vatnamælingum hérlendis. Þegar hann hóf það starf fyrir áratugum varð að fara yfir óbrúuð stórfljót til að komast að mælinga stöðum á hálendi landsins. Getur hann þess að mælingarnar sjálfar hafi þá verið létt verk í hlutfalli við þess háttar leiðangra. Nú er öldin önnur og auðveldara að komast leiðar sinnar. Og nú er líka meira vitað um ár og vötn á Íslandi, svo er Sigurjóni fyrir að þakka.\u003cbr\u003eÞarna er því lýst hvernig rennsli og vatnsmagn er mælt. Ekki er það flókið í sjálfu sér, en kostar þó verulega nákvæmni. Og þá ekki síður aðgæslu. Stöku sinnum kjark og áræði. Því ekki eru öll stórfljót auðveld viðureignar. Mælingar verður og að endurtaka á öllum árstímum þar eð rennsli er síbreytilegt, getur líka verið mismunandi mikið eftir árstíðum svo stórmiklu munar. Á því hefur þjóðin reyndar fengið að kenna á liðnum öldum.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124948664648,"sku":"OSC-38917","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/77005.jpg?v=1754793480","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/vatns-er-thorf-77005-38917","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}