{"product_id":"velar-timans-86901-34717","title":"Vélar tímans # 86901","description":"Vélar tímans. Skáldsaga eftir Pétur Gunnarsson.\u003cbr\u003eÍ byrjun 15. aldar hefur Svartidauði kvistað niður landslýðinn svo innan við helmingur lifir eftir af þjóðinni. Unglingspilturinn Natan er einn eftir af munkum Þykkvabæjarklausturs. Í rás sögunnar slæst Natan í fræga för með Birni Jórsalafara til Jerúsalem. Samtímis er ferðast um hugarheim fólksins í gegnum bókmenntir tímabilsins. Jafnframt er, eins og í fyrri bókum bálksins, dvalið við nútímann og hann skoðaður í aldarspegli hins liðna, og öfugt.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞriðja bókin í hinum frumlega og metnaðarfulla sagnabálki Péturs, sem hann kallar Skáldsögu Íslands. Fyrri bækurnar, Myndin af heiminum og Leiðin til Rómar, voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440258085192,"sku":"OSC-34717","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/82217.jpg?v=1770470887","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/velar-timans-86901-34717","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}