{"product_id":"verandi-60309-53638","title":"Verðandi # 60309","description":"Verðandi. Útgefendur: Bertel E. Ó. Þorleifsson, Einar Hjörleifsson, Gestur Pálsson, Hannes Hafstein. Allt sem út kom.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVerðandi var íslenskt tímarit sem kom út í Kaupmannahöfn árið 1882 og er upphaf raunsæisstefnunnar á Íslandi miðað við útgáfu þess. Aðeins kom út eitt hefti af tímaritinu en það hafði þó mikil áhrif á íslenskar bókmenntir.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÚtgefendur tímaritsins voru fjórir ungir menntamenn sem allir voru eða höfðu verið við nám í Danmörku. Þetta voru þeir Gestur Pálsson, Einar H. Kvaran, Bertel Þorleifsson og Hannes Hafstein, sem var yngstur fjórmenninganna, rétt rúmlega tvítugur. Gestur og Einar birtu smásögur í tímaritinu en Hannes og Bertel ljóð. Sum ljóð Hannesar sem þarna birtust í fyrsta sinn urðu alþekkt, svo sem Stormur, Skarphéðinn í brennunni, Nei, smáfríð er hún ekki, Sprettur (Ég berst á fáki fráum) og Þar sem háir hólar, en af öðru efni tímaritsins er smásaga Gests, Kærleiksheimilið, líklega þekktust.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEkki var neinn sérstakur inngangur eða stefnuyfirlýsing í tímaritinu en þó varð strax ljóst að þarna var ný stefna á ferðinni sem ekki hafði áður sést í íslenskum bókmenntum. Voru fjórmenningarnir kenndir við tímaritið og kallaðir Verðandimenn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHér höfum við lesinn og lúðan Verðanda. En svona fer með góðar bækur, þær eru lesnar aftur og aftur.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122994118984,"sku":"OSC-53638","price":39500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/60309.jpg?v=1754754812","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/verandi-60309-53638","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}