{"product_id":"verold-okkar-vandalausra-64700-56773","title":"Veröld okkar vandalausra # 64700","description":"Veröld okkar vandalausra. Skáldsaga eftir Kazuo Ishiguro. Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi.\u003cbr\u003eVeröld okkar vandalausra segir sögu einkennilegs manns, Christopher Banks, sem elst upp meðal ættingja sinna í Bretlandi á millistríðsárunum. Aðeins níu ára gamall, á meðan fjölskyldan var búsett í Shanghæ í Kína, mátti Banks sjá á bak foreldrum sínum. Hann rekst illa í hópi skólafélaga sinna en eftir að skólagöngu lýkur getur hann sér gott orð fyrir snjallar lausnir á flóknum glæpamálum. Eftir því sem skuggi nýrrar styrjaldar færist yfir heimsbyggðina finnur Banks sig knúinn til að leita uppi æskuslóðirnar í Shanghæ, bernskuvininn Akira og lausn ráðgátunnar sem umlykur hvarf foreldra hans. Veröld okkar vandalausra fékk verðskuldað lof gagnrýnenda og var bókin meðal annars tilnefnd til Booker-verðlaunanna árið 2000. (Bókatíðindi 2001).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122490540360,"sku":"OSC-56773","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/64700.jpg?v=1754744807","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/verold-okkar-vandalausra-64700-56773","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}