{"product_id":"villi-fer-til-kaupmannahafnar-83741-69970","title":"Villi fer til Kaupmannahafnar # 83741","description":"Villi fer til Kaupmannahafnar. Saga og teikningar eftir Maríu H. Ólafsdóttur.\u003cbr\u003eÞetta er fyrsta sagan sem listakonan María Hugrún Ólafsdóttir hefur skrifað og myndskreytt, og segir sagan frá ferðalagi og dvöl fimm ára íslenzks drengs, sem hélt frá Íslandi með móður sinni fyrir mörgum árum til dvalar í borginni frægu við sundið, Kaupmannahöfn.\u003cbr\u003eMaría Hugrún Ólafsdóttir er þekkt listakona í Danmörku. Hún er fædd í Tálknafirði árið 1921. Stundaði nám við Handíðaskólan í Reykjavík árið við stofnun hans árið 1941. Nam við listaháskólan í Kaupmannahöfn í 6 ár, og hefur í 23 ár tekið þátt í listasýningum með listamannafélaginu \"Se\" í Charlottenborg, ennfremur hefur hún haldið sjálfstæðar sýningar og ferðast víða um lönd.\u003cbr\u003eMargar opinberar stofnanir í Danmörku hafa keypt verk eftir Maríu, og hún hefur hlotið marga heiðursstyrki, svo sem frá Ekesbergsjóðnum, íslenzk-danska sjóðnum og Listasjóði danska ríkisins.\u003cbr\u003eFerðalag Villa litla er skemmtilegt lestrarefni handa öllum börnum. (Káputexti).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51120440475976,"sku":"OSC-69970","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/83741.jpg?v=1754699442","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/villi-fer-til-kaupmannahafnar-83741-69970","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}