{"product_id":"vinlega-64299-23344","title":"Ævinlega # 64299","description":"Ævinlega. Skáldsaga eftir Guðberg Bergsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTilvonandi eiginkona mín og væntanleg fyrirmyndar húsmóðir varð ólm í að fá að vita hjá Kötu eitthvað nánar um þá eldamennsku sem hún hafði aldrei hvorki heyrt um né kynnst áður. Frænka leit á það sem hrós og lét ekki ganga lengi á eftir sér. Sú tilgerð er ekki til í ættinni og hún sagði hreinskilningslega:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÉg er góð húsmóðir en hef verið fremur lítið fyrir að elda mat á lífsleiðinni, aðallega á þetta við um kjötið. Samt er það hvorki af leti né bældum ótta við eldavélina, vegna þess að ég sletti oft köku í ofn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVinkonan og ég kinkuðum ákaft kolli á traustvekjandi hátt, til að hvetja hana til að halda áfram að hrósa sér. Hún lét ekki segja sér það tvisvar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFyrst ég viðurkenni að ég er þannig gerð, hvað átmat og súpur varðar en ekki brauðmatinn, þá kom mér ágætis ráð í hug á fyrstu búskaparárunum. Einn góðan veðurdag á laugardagskvöldi, þegar ég var komin í kippinn, stakk ég af tilviljun kindalæri í ofninn í staðinn fyrir köku og stillti á lægsta straum, líkt og ég ætlaði að seiða rúgbrauð. Það var eins og við ofninn mælt, þótt ég hafi gleymt lærinu, hann steikti yfir nóttina það mikið utan á beininu að nægði í hádegismatinn fyrir okkur tvö næsta dag; krakkarnir voru þá ókomnir í heiminn. Eldamennskan í ellinni var síðan leyst með þessu móti á mínu heimili, svo ég verð ekki hrukkótt í andliti yfir pönnunni.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMikið er þetta sniðugt, sagði kærastan yfir sig hrifin.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHún leit eflaust þannig á málin að með sama móti gæti hún gift sig sallaróleg án þess að lenda í vandræðum með matargerð á sunnudögum, hún styngi læri í ofninn áður en hún byrjaði að fá sér í glas og gæti verið að létta sér upp fram undir morgun, þegar hún vaknaði undir hádegi þyrfti hún aldrei að horfast í augu við hræðilegasta vanda nútímahjóna að vakna þræltimbruð á sunnudagsmorgnum og eiga ekkert heitt og soðið til að éta. Með þessu móti biði maturinn heitur í ofninum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞetta er ekki sniðugt, heldur hagsýni, öðru fremur hugvit, sagði frænka en fór ekki nánar út í þá sálma.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVið brögðuðum varlega á kjötinu. Það var á bragðið örlítið svipað seiddu rúgbrauði, enda hugmyndin komin frá því, en annars bæði ætt og þokkalegt. Frænka átti þess vegna hrós skilið. Hún ráðlagði okkur að hefja búskapinn með sömu eldamennsku, en ekki smáréttavafstri og fiskisúpunum sem núna eru í tísku og svo mikill tími fer í að laga, þótt öllu sé dengt í pottinn, að fólk hefur varla tíma til að gægjast í glas á eftir.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125931278664,"sku":"OSC-23344","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/64299.jpg?v=1754817995","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/vinlega-64299-23344","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}