{"product_id":"vinur-landeyings-74915-41615","title":"Vinur Landeyings # 74915","description":"Vinur Landeyings. Frásaga eftir Thorvald Peter Ludvig Weitemeyer. Formálsorð eftir Magnús Ingvarsson og Ragnar Böðvarsson.\u003cbr\u003eLíkt og í Kanada gerðu yfirvöld í þessari fyrrum\u003cbr\u003efanganýlendu Breta Evrópumönnum boð um að koma\u003cbr\u003eog setjast að. En lífið þar syðra var hart og\u003cbr\u003eævintýralegt og þar segir fátt af einum. Í meira\u003cbr\u003een öld voru afdrif Þorvaldar jarðyrkjumanns frá\u003cbr\u003eBryggjum ókunn jafnt ættmennum hans og\u003cbr\u003eættfræðingum hér heima. Fréttir af Þorvaldi og\u003cbr\u003eandláti hans bárust fyrst um aldamótin 2000\u003cbr\u003eþegar aldargömul bók Weitemeyers barst í hendur\u003cbr\u003eMagnúsi Ó. Ingvarssyni í Keflavík.\u003cbr\u003eHér rekur\u003cbr\u003edanskur ævintýramaður sögu sína og segir um leið\u003cbr\u003esögu vinar síns og ferðafélaga frá Íslandi.\u003cbr\u003eSveitadrengs sem var alltof blíðlyndur fyrir hið\u003cbr\u003ehrjúfa líf óbyggðanna. Þorvaldur frá Bryggjum\u003cbr\u003evar kominn langt að heiman þegar hann veiktist\u003cbr\u003eskyndilega í tjaldi sínu á regnvotum degi í\u003cbr\u003ejanúarmánuði 1874. Frásagnir af andláti hans eru\u003cbr\u003ehinar ævintýralegustu og rithöfundurinn gefur\u003cbr\u003eskáldfáki sínum lausan tauminn.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124812742984,"sku":"OSC-41615","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/45447.jpg?v=1754787670","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/vinur-landeyings-74915-41615","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}