{"product_id":"visaga-breifirings-74942-40532","title":"Ævisaga Breiðfirðings # 74942","description":"Ævisaga Breiðfirðings. Endurminningar Jóns Kr. Lárussonar frá Arnarbæli.\u003cbr\u003eÍ tímaritinu Fálkinn 22.árgangur 1949, 41.tölublaði er auglýsing frá Ísafoldarprentsmiðju. Þar segir um æviminningar Jóns Kr. Lárussonar.\u003cbr\u003eEndurminningar Jóns Kr. Lárussonar frá Arnarbæli.\u003cbr\u003eÍ þessari ævisögu kennir margra grasa, því höfundurinn\u003cbr\u003ehefir frá mörgu að segja, og kann manna best að klæða frásögnina lit og lífi. Margar þær myndir, sem hann dregur upp\u003cbr\u003eaf mönnum og viðburðum, eru svo glöggar að seint líður úr\u003cbr\u003eminni.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJón Kr. Lárusson var farinn að líkamskröftum síðustu árin og löngum fúmfastur. En hann var mjög vel hress andlega,\u003cbr\u003eminnið trútt og með öllu óbilað. Á síðastliðnum vetri hóf hann\u003cbr\u003eað rita endurminningar sínar, þótt aðstaða væri með fádæmum erfið. Hann lá á sjúkrabeði — oft sárþjáður - gat engra\u003cbr\u003ehjálpargagna notið við ritstörfin, og varð hvað eftir annað\u003cbr\u003eað leggja frá sér blað og penna, þegar þrautirnar voru sem\u003cbr\u003emestar. En honum miðaði ótrúlega vel áfram. Hann vissi að\u003cbr\u003evist sinni hérna megin grafar væri þá og þegar lokið. Og\u003cbr\u003eréttum fjórum mánuðum eftir að hann hóf starfið, hafði hann\u003cbr\u003elokið við að rita bókina. Það reyndist og rétt, að ekki væri\u003cbr\u003elangur tími til stefnu, því að 16. september síðastliðinn, um það\u003cbr\u003eleyti sem verið var að ljúka við prentun bókarinnar, andaðist Jón Kr. Lárusson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞetta er að mörgu leyti merkileg bók, sannorð og berorð\u003cbr\u003elýsing á ævi og kjörum aíþýðumanns.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eUpplag bókarinnar er lítið og ættu bókamenn að hafa það\u003cbr\u003eí huga.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124872315208,"sku":"OSC-40532","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/44165.jpg?v=1754790122","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/visaga-breifirings-74942-40532","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}