{"product_id":"visnakver-hartmanns-70120-54119","title":"Vísnakver Hartmanns # 70120","description":"Vísnakver Hartmanns.\u003cbr\u003eTeitur Hartmann var fæddur í Tungumúla í Rauðasandshreppi. Foreldrar hans voru Jón Bjarnason og Þórdís Teitsdóttir. Ungur fluttist hann með þeim til Patreksfjarðar og ólst þar að mestu upp. Innan við tvítugt flutti hann til Ísafjarðar og fór að vinna sem lyfjasveinn, fyrst hjá lækninum og síðar lyfsalanum. Á árunum 1912–1916 dvaldi hann í Ameríku en heimkominn aftur vann hann í Reykjavíkur Apóteki og Laugavegs Apóteki. Vorið 1926 flutti hann austur á fjörðu og bjó þar fyrst á Eskifirði og síðan á Norðfirði, vann þar bæði við lyfsölu og húsamálningu. Árið 1925 kvæntist hann Guðrúnu Guðfinnsdóttur hjúkrunarkonu á Eskifirði. Árið 1942 fluttust þau hjón til Ísafjarðar og vann Teitur þar í Ísafjarðar Apóteki til æviloka. Ekki hlaut Hartmann mikla formlega skólamenntun en varð þó vel að sér á ýmsum sviðum, til dæmis í tungumálum og náttúrufræðum. Þá var hann liðtækur skákmaður. Hann var talsvert veikur fyrir víni og tengjast ýmsar þekktustu vísur hans kynnum hans við Bakkus. Árið 1951 gaf Guðrún ekkja hans út Vísnakver Hartmanns.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEnga frekju, haf þig hægan\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eheyrðu sannleikann:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eTil að gera garðinn frægan\u003cbr\u003e\u003cbr\u003egekk ég inn í hann!","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122935169352,"sku":"OSC-54119","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/70120.jpg?v=1754753207","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/visnakver-hartmanns-70120-54119","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}