{"product_id":"visur-og-kvilingar-18876-19085","title":"Vísur og kviðlingar # 18876","description":"Vísur og kviðlingar eftir Erlend Gottskálksson. Með æfiágripi og minningarorðum.\u003cbr\u003eÞór Stefánsson ritar æviágrip og Valdimar Erlendsson minningarorð.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ Eimreiðinni 23.árg. 1.tbl. 1917 er fjallað um Vísur og kviðlinga Erlends Gottskálkssonar. Þar segir: - Þó að í kvæðasafni þessu megi finna dáindis falleg kvæði (eins\u003cbr\u003eog t. d. \"Við æfilokin\" bls. 59, \"Hugspár\" bls. 61, \"Úr eftirmælum\" bls. 54, hið meinfyndna skopkvæði \"Yfirvöldin\" bls. 780. fl.),\u003cbr\u003eþá verður þó ekki sagt, að það fylli neitt autt skarð í bókmentum vorum eða beri vott um mikla skáldgáfu hjá höf., heldur aðeins, að hann\u003cbr\u003ehafi verið gáfaður hagyrðingur. Þetta virðist honum og sjálfum hafa\u003cbr\u003everið ljóst, því svo segir í æfiágripinu framan við kvæðin:\u003cbr\u003e\"Þess ber að geta, að Erlendur ætlaðist ekki til, að ljóð hans\u003cbr\u003ekæmust nokkurntíma fyrir almennings sjónir, því hann lét brenna, áður en hann dó, allstórt ljóðasafn, er hann átti í handriti. Það, sem\u003cbr\u003ehér birtist, er því ekki nema lítill hluti af ljóðum hans, aðallega\u003cbr\u003enokkrar tækifærisvísur og eftirmæli, er geymst hafa í manna minnum\u003cbr\u003eog dagblöðum frá fyrri árum. Hitt alt mun algerlega glatað.\"\u003cbr\u003eÞar sem hér því ekki er um nema lítið hrafl af kvæðum höf. að\u003cbr\u003eræða, og mikið af því eftirmælí, vantar sýnilega nægilega ábyggilegan\u003cbr\u003egrundvöll til að dæma um skáldskap hans yfirleitt. En ljóðakver þetta\u003cbr\u003eer heldur ekki útgefið í þeim tilgangi, að afla höf. þess sætis sem\u003cbr\u003eneinni blikandi stjörnu á bókmentahimni vorum, heldur eru ljóðmælin\u003cbr\u003enotuð sem undirstaða undir minningarmark, sem sonur og sonarsonur\u003cbr\u003ehöf. hafa óskað að reisa honum. Og þetta hefir þeim tekist snildarlega vel. Því bæði æfiágripið og minningarorðin framan við\u003cbr\u003ekvæðin eru svo prýðilega rituð, að þau gefa bókinni gildi og gera\u003cbr\u003ehana að fögru minningarmarki. Þau sýna svo ljóslega, að Erlendur\u003cbr\u003eGottskálksson hefir verið harla merkilegur maður í mörgum greinum,\u003cbr\u003egáfumaður og smekkmaður, glettinn, fyndinn og þarfur maður í sínum\u003cbr\u003everkahring. Og að hann hafi verið góður og skemtilegur heimilisfaðir,\u003cbr\u003ebera minningarorð Valdimars læknis sonar hans ljósastan vott um.\u003cbr\u003eÞað er enginn hversdags meðalmaður, sem tekst að ná jafndjúptækri\u003cbr\u003elotning og aðdáun barna sinna, eins og skín út úr minningarorðum\u003cbr\u003elæknisins. Það má því með sanni segja, að útgefendunum hafi tekist\u003cbr\u003eað reisa föður sínum og afa fagurt minningarmark með þessum bæklingi, hvort sem skáldlegt gildi kvæða hans er meira eða minna.\u003cbr\u003eSkáldskapurinn virðist aldrei hafa verið neitt aðalatriði í lífi hans,\u003cbr\u003eheldur hefir góð hagyrðingsgáfa verið eitt af mörgu öðru, sem honum\u003cbr\u003evar til lista lagt.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126235595080,"sku":"OSC-19085","price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/erlendurgottskalksson_visurogkvidlingar_skinnband.jpg?v=1754825049","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/visur-og-kvilingar-18876-19085","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}