{"product_id":"yfirdomarinn-87785-72577","title":"Yfirdómarinn # 87785","description":"Yfirdómarinn. Leikur í fimm sýningum eftir Tómas Jónasson.\u003cbr\u003eÞetta er Ljósrit af handriti Tómasar. Finnur Sigmundsson ritar um höfundinn.\u003cbr\u003eTómas Jónasson var fæddur 9. september árð 1835 á Veturliðastöðum í Fnjóskadal. Tómas missti föður sinn árið 1852, en móðir hans var þá dánin fyrir nokkrum árum. Tómas var í lausamennsku í Fnjóskadal, Bárðardal og víða í Eyjafirði en árið 1867 festi hann ráð sitt og kvæntist Björgu Emelíu Þorsteinsdóttur frá Hlíðarenda í Ljósavatnssókn. Tóku þau við búi á Hlíðarenda en vorið 1874 fluttu þau að Hróarsstöðum í Fnjóskadal og bjó Tómas þar til æviloka. Hann andaðist úr lungnabólgu í október 1883.\u003cbr\u003eTómas hneigðist snemma til bókar, þó ekki væri kostur á skólagöngu. Til eru slitur úr dagbókum hans og ýmsum minnisblöðum frá 1851 - 1883. Þau sýna að hugur hann stefndi einkum að bóklegum fræðum og skáldskap. Hann var laglega hagmæltur og er nokkuð til af kveðskap hans. Finna má greinar eftir hann í Akureyrarblöðunum, einkum minningargreinar og erfiljóð. En mesta áhugamál hans var þó leikritagerð. Hann hafði tilsagnarlaust komið sér nokkuð niður í ensku og dönsku og gat lesið leikrit á þeim málum. Af bókareikningum hans sést að hann keypti sér dýrar orðabækur og ýmsar merkar bækur erlendar. Þá sést að hann hefur verið áskrifandi að ritum eftir Shakespeare.\u003cbr\u003eTil eru fjögur leikrit eftir Tómas. Á síðasta þriðjungi 19. aldar var talsvert um leiksýningar í sveitum norðanlands, einkum í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu. Leikritum Tómasar var vel tekið og þau sýnd víða. Yfirdómarinn mun hafa verið sá leikur Tómasar sem hvað mestum vinsældum náði og var hann víða leikin og einnig eftir aldamótin 1900.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440515346760,"sku":"OSC-72577","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/87785.jpg?v=1770474297","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/yfirdomarinn-87785-72577","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}