Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Lærdómsrit Bókmenntafélagsins. »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Ærumissir # 79078
Ærumissir # 79078
2.900 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Ár var alda # 77184   [Forlagsband, kápa]
Steven Weinberg

Ár var alda # 77184
Verð: 1.900 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak.
Vörunúmer: #77184
   



Innihald
Ár var alda. Eftir Steven Weinberg. Þýðandi: Guðmundur Arnlaugsson. Inngang ritar Einar H. Guðmundsson.
Bandaríski eðlisfræðingurinn Steven Weinberg er einn af merkustu vísindamönnum samtímans og sá sem á einna mestan heiðurinn af því að hafa kynnt heimsmynd nútímaeðlisfræði fyrir almenningi. Weinberg er einn frumkvöðla svokallaðrar öreindaheimsfræði og hlaut Nóbelsverðlaunin ásamt tveimur samstarfsmönnum sínum árið 1979 fyrir kenningu sem gefur sameiginlega lýsingu á rafsegulkraftinum og veika kraftinum. Ár var alda (e. The First Three Minutes) hefur notið stöðugra vinsælda frá því hún kom fyrst út árið 1977 og þykir enn í dag gefa glögga mynd af heimsfræði nútímaeðlisfræði.
Weinberg hefur einstakt lag á því að skýra flókin efni á aðgengilegan hátt án þess að gerast sekur um ónákvæmni eða ofureinföldun og styðst til að mynda hvergi við stærðfræðiformúlur í þessari bók. Engu að síður tekst honum að gefa lesandanum skýra mynd af viðfangsefni sínu, frumbernsku alheimsins. Með uppgötvun svokallaðs örbylgjukliðar kom í ljós að alheimurinn er að þenjast út og að upptök hans eiga að öllum líkindum rætur að rekja til Miklahvells. Við þær aðstæður er talið að þrír af hinum fjórum frumkröftum – rafsegulkrafturinn, sterki víxlverkunarkrafturinn, sem heldur nifteindum og róteindum saman í kjarna atóma, og veiki frumkrafturinn – hafi birst sem þrjár hliðar sama fyrirbæris í gríðarlega þéttu og heitu frumástandi. Weinberg lýsir hinni hröðu útþenslu og kólnun fyrstu andartakanna eftir Miklahvell þar sem öreindirnar drógust saman og mynduðu fyrst létta atómkjarna og svo smám saman það efni sem er til í heiminum í dag. Hann bregður upp myndum af ástandi alheimsins allt aftur að fyrsta hundraðshlutanum úr sekúndu eftir Miklahvell og greinir frá því hver gerð hans var á hverju andartaki eftir það, samkvæmt þeim lögmálum og þróun semöreindafræðingar telja að átt hafi sér stað við útþenslu heimsins.
Weinberg hefur bætt við bókina eftirmála, rituðum 1993, þar sem hann fjallar um þá þróun sem átt hefur sér stað innan heimsfræðinnar frá því hún kom upphaflega út. Að auki fylgja bókinni orða- og nafnaskýringar auk reiknikafla, lesendum til glöggvunar.
Í inngangi gerir Einar H. Guðmundsson stjarneðlisfræðingur þróun eðlisfræðinnar á 20. öld ítarleg skil, segir frá framlagi Weinbergs og fjallar auk þess um stöðu útgáfu alþýðlegra rita um heimsmynd nútímavísinda hér á landi. (www.hbi.is)



Um bókina
Reykjavík. Hið íslenzka bókmenntafélag 1998.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Ár var alda # 77184
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce