Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Ævisögur og endurminningar. » Visindamenn og hugsuðir »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Sóleyjarsaga # 88143
Sóleyjarsaga # 88143
6.900 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Eins og gengur # 84716   [Forlagsband, kápa]
Sigurður Thoroddsen

Eins og gengur # 84716
Verð: 2.900 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak.
Vörunúmer: #84716
   



Innihald
Eins og gengur. Æviminningar Sigurðar Thoroddsen. Halldóra Thoroddsen bjó til prentunar.
Sigurður Thoroddsen verkfræðingur fæddist á Bessastöðum á Álftanesi, en þangað höfðu foreldrar hans, Theódóra og Skúli, flutt frá Ísafirði þar sem Skúli var sýslumaður og kaupmaður. Skúli var þó kunnari fyrir þingmennsku og ritstjórn Þjóðviljans eldri.
Sigurður gekk í Landakotsskóla og síðar í Menntaskólann í Reykjavík. Þaðan útskrifaðist hann stúdent árið 1919, á sautjánda ári.
Eftir eins árs nám í heimspeki við Háskóla Íslands fór Sigurður til Kaupmannahafnar, las verkfræði og lauk prófi árið 1927.
Ekki var um auðugan garð að gresja í atvinnumálum verkfræðinga hér á landi þegar hann kom heim úr námi. Sigurður vann ýmis verk, gerði úttekt á hafnarstæðum á Norð-Austurlandi, vann við athuganir á virkjanamöguleikum og var starfsmaður Vitamálastofu í fjögur ár.
Hann stofnaði eigin verkfræðistofu vorið 1932, Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, sem var fyrsta verkfræðistofa landsins. Reksturinn fór rólega af stað, en frá stríðslokum óx hann hratt.
Sigurður var mikill áhugamaður um virkjanir og hannaði m.a. vatnsaflsvirkjanir á Eiðum og í Hallormsstað. Á norrænni ráðstefnu árið 1952 kynnti hann fyrstu yfirlitsáætlun sína um vatnsafl á Íslandi.
Hann sat í fjögur ár á alþingi fyrir Sósíalistaflokkinn og lét sig raforkumál mestu varða.
Sigurður Thoroddsen sat í raforkuráði, náttúruverndarráði, ráðgjafarnefnd í virkjunarmálum og útboðsnefnd. Þá sat hann um tíma í stjórn Landsvirkjunar og í raforkunefnd.
Hann lét sig náttúruverndarmál miklu varða og ritaði grein í Tímarit verkfræðinga árið 1955 um mikilvægi náttúruverndar. Þar segir hann m.a. að verkfræðingum beri "beinlínis skylda til að sjá um að mannvirkjagerð sé svo af höndum leyst, að sem til minnstra lýta verði í landslagi, því ef svo verður, er gengið á rétt almennings, en heill hans á verkfræðingurinn að bera fyrir brjósti ..."



Um bókina
Reykjavík. Mál og menning, 1984.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Eins og gengur # 84716
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce