Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur. »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Brúðan hans Borgþórs # 79079
Brúðan hans Borgþórs # 79079
6.900 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Aldarfar og örnefni í Önundarfirði # 67020   [Forlagsband]
Óskar Einarsson

Aldarfar og örnefni í Önundarfirði # 67020
Verð: 19.500 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak.
Vörunúmer: #67020
   



Innihald
Aldarfar og örnefni í Önundarfirði. Eftir Óskar Einarsson.

Í Tímanum 24. nóvember 1951 fjallar Gils Guðmundsson um Aldarfar og örnefni í Önundarfirði. Þar segir m.a.:
Dómur minn um rit Óskars læknis er í stuttu máli sá, að það sé samið af fágætri vandvirkni og alúð og hafi að geyma mikið af traustum fróðleik. Flestum Önfirðingum mun það verða skemmtilestur, en margir aðrir, sem hneigjast að gömlum fræðum, munu hafa af því drjúga ánægju. Eru þar víða góðar og skarplegar athuganir, sem snerta eigi aðeins sögu Önfirðinga, heldur þjóðmenningar sögu okkar í heild. Vil ég í því sambandi benda á kaflann um „ævikjör Önfirðinga". Þar er að finna ýmsar merkilegar bendingar um vaneldissjúkdóma fyrr á tímum. og sambandið milli bráðadauða fólks á vorin og mataræðis þess að vetrinum. Einnig má nefna hugleiðingarnar um erfðafræði og sjúkdóma. Saknar maður þess helzt, að ýmsum girnilegum rannsóknarefnum, sem á er drepið, skuli ekki gerð rækilegri skil, en einhvers staðar verða takmörkin að vera. Tel ég það einn höfuð kost bókarinnar, að hún vekur víða til umhugsunar um mikils verð atriði þjóðmenningarsögu, sem auga læknisins er vafalaust: um gamalla örnefna frá algerri glötun. Um örnefni og söfnun þeirra farast Óskari þannig orð: „Á Vestfjörðum er land fjölbreytt og örnefni mörg. Sumar jarðir eru bókstaflega svo þaktar nöfnum, að varla verður þverfótað milli þeirra. Mjög er þetta þó misjafnt, rétt eins og fólkið sjálft er misminnugt og misgreint. Að öðru jöfnu eru þær jarðir örnefnaríkastar, sem setnar hafa verið mann fram af manni af sama stofni. Tíð ábúendaskipti eru hættuleg örnefnunum, einkum ef ábúendur flytjast að úr fjarlægum og ólíkum sveitum.
Óskar Einarsson kom algerlega ókunnugur til Önundarfjarðar og dvaldist þar eigi lengur en áratug, heilsuveill jafnan og þó hlaðinn margvislegum störfum. Þegar á þetta er litið, má undravert heita, hve traust þekking hans er á héraðinu, hvort heldur litið er á sögu þess eða staðfræði. Hefir hann og gert sér allt far um að vanda rit sitt, og mun það hafa krafizt meiri nákvæmni og elju en ætla mætti í fljótu bragði. Allt ber ritið þess vott, að hér er ekki um neina „aktaskrift" að ræða, heldur ljúft starf unnið af áhuga og alúð.



Um bókina
Reykjavík. Iðunn, 1951.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Aldarfar og örnefni í Önundarfirði # 67020
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce