101 tækifæri # 89990
- Regulärer Preis
- 9.500 kr
- Angebotspreis
- 9.500 kr
- Regulärer Preis
- Stückpreis
- pro
101 tækifæri. Höfundur Snorri Freyr Hilmarsson. Ljósmyndir Snorri Freyr Hilmarsson, Thorsten Henn, Þórdís Claessen og fleiri. Teikningar Snorri Freyr Hilmarsson, Halldór Baldursson og Grétar Markússon.
Reykjavík á sér fallegan gamlan miðbæ sem er sögulegt hjarta borgarinnar. Í máli og myndum er hér vakin athygli á þeim verðmætum sem þessi mikilvægi borgarhluti býr yfir og hvaða tækifæri eru í þeim fólgin.
Að skoða hús er að skoða aldarspegil. Sögulegt umhverfi er ómissandi fyrir mannlíf og menningu Reykjavíkur til framtíðar litið. Ef vel er með farið endurspeglar gamli bærinn gott og heilbrigt samfélag. Tíðarandinn hefur ekki alltaf verið reykvískum byggingararfi hagstæður. Þau verðmæti sem í honum felast hafa ef til vill aldrei verið mikilvægari en nú, þegar fram fer endurmat á öllu gildismati samfélagsins.