Ævisaga Eyjasels-Móra # 90215

Regulärer Preis
4,900 kr
Angebotspreis
4,900 kr
Regulärer Preis
Ausverkauft
Stückpreis
pro 
Location
Reykjavík. Ísafoldarprentsmiðja, 1962.
Date
—
Condition
—
Binding
—

Ævisaga Eyjasels-Móra. Safnað, skráð og saman fært hefur Halldór Pétursson.
Gott eintak, forlagsband og kápa. Árituð f.h. Eyjasels-Móra af Halldóri Péturssyni.
Um aldamótin 1800 flytur Hálfdan Hjörleifsson ásamt konu sinni og börnum frá Eyjaseli í Ketilstaði í Jökulsárhlíð, en Eyjasel var afbýli frá Ketilsstöðum. Faðir Hálfdans hafði búið á Ketilsstöðum en var fallin frá og Hálfdan tók við búi á Ketilsstöðum þar sem þeim hjónum búnaðist vel og voru talin til meiriháttar bændafólks.
Á Ketilstöðum bjó einnig fólk Hálfdáns og Guðlaugar Einarsdóttur konu hans, m.a. Ingibjörg systir Hálfdans vinsæl ung og myndarleg kona. Ingibjörg hafði farið 22 ára gömul til starfa í Hallgeirsstaði í sömu sveit til Brynjólfs Péturssonar læknis, sem þá var miðaldra ekkjumaður.
Brynjólfur á að hafa farið á fjörurnar við Ingibjörgu, en í stuttu máli fór sú fjöruferð svo að Ingibjörg forðaði sér hið snarasta heim í Ketilsstaði. Er hún kom heim veiktist hún hastarlega innvortis og voru meðul fengin hjá Brynjólfi. Þegar Ingibjörg hafði tekið meðalið varð hún vitskert.
Aftur var leitað á náðir Brynjólfs með meðal til að lækna geðveikina. Þegar komið var með það meðalaglas frá Hallgeirsstöðum út í Ketilsstaði og það opnað steig upp úr því gufa sem fólki sýndist þéttast í mórauðan strák með skörðóttan barðastóran hatt og upp frá því hófst djöfulgangur sem á sér enga líka.
Skepnur á Ketilsstöðum voru drepnar umvörpum á hroðalegan hátt, húsum riðið og þau brotin niður dag og nótt. Þóra, dóttir Hálfdans og Guðlaugar, fannst kyrkt í fjósinu sem var undir baðstofunni þegar fólk kom að eftir að hafa heyrt ópin í henni upp í baðstofu. En Þóra hafði farið niður í fjós til að hafa næði við að lesa í kverinu það sem hún þurfti að kunna fyrir fermingu. 

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.